Dívan í Køben

Go ahead, make my day!!

23.12.2006 12:44:08 / reginauo

Dúdúdírú

Jamm ég er komin heim en er föst inní Kringlu að vinna í Jens þannig að allir sem vilja hitta mig fyrir jól mega koma að heimsækja mig þangað:lol:


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 10:30:36 / reginauo

Helgin...

Átti mjög fína helgi. Á föstudagskvöldið fór ég í smá gleðskap til Álfrúnar og Egils þar sem saman voru komnir nokkrir Íslendingar til að fagna fullveldisdeginum,( já já allar afsakanir notaðar til að halda partý ;)). Svo á laugardeginum þá fór ég og reif Álfrúnu, Egil og Karen framúr rúminu og við töltum uppí bæ og röltum þar um og skoðuðum fólk og jólaljós. Fengum okkur að borða á póstsafninu og ég fékk þetta líka ljúffenga salat, nammi namm. Svo gengum við meira um og borðuðum brenndar möndlur og fórum inn í Illum bolighus þar sem fólk var í óða önn að kaupa jólagjafir. Síðan ætluðum við að fara á Hvids vinsstue og fá okkur jólaglögg en þar var stappað út úr dyrum þannig að við enduðum á einhverju kaffihúsi.
En svo þurfti ég að drífa mig heim. Ég hélt smá partý fyrir stelpurnar í vinnunni og við borðuðum Thai mat sem var mjög góður og svo var bara malað fram á nótt þanngað til við drösluðumst niður á Ideal bar þar sem var funkadellic kvöld og dönsuðum við fram á rauða þar til ég gat ekki meir og fór heim. Svo vaknaði ég á sunnudaginn með þvílíkann hálsríg og hann er enn að plaga mig. Ég hlít að hafa hrist hausinn svona allsvakalega í dansmúvunum! úje 


» 4 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Dagsetning
22. mars 2010
Skemmtilegar síður