Dívan í Køben

Go ahead, make my day!!

07.03.2007 11:07:08 / reginauo

Komid stúlkubarn

Elsku Linda og Andri. Til hamingju med litlu prinsessuna. Ég var nú ad vona ad hún myndi nú láta bída eftir sér í um svona viku, eda fram á 13. svo ad ég fengi hana í afmælisgjøf en madur mátti nú búast vid thví ad hún væri med sama tímaskyn og módirin, alltaf svo stundvís ;).

En enn og aftur til hamingju. Thetta er alveg frábært.
Kossar og knús:D 


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 17:21:43 / reginauo

Ný færsla

Úff það er búið að vera skítaveður hérna í Köben síðan í síðustu viku. Það snjóaði og snjóaði þannig að það var frekar ómögulegt að hjóla og það er ekki vinsælt þegar maður reiðir sig á hjólið til að komast á milli staða. Og þegar það snjóar þá notar fólk strætóana og lestarnar sem veldur því að allt of mikið af fólki er að nota almennings samgöngurnar og kerfið nánast hrinur. Allir strætóar eru seinir og lestirnar eru bara í einhverju fokki.
En sem betur fer rigndi í nótt þannig núna er sem mestur snjór farinn af götunum.

En annars er það í fréttum að núna er búið að loka skartgripaversluninni sem ég var að vinna í þannig að núna er ég bara orðinn atvinnulaus aumingi með hor, hehehehe nei okei kannski ekki alveg. Ég hef nóg að gera. Hef ákveðið að taka mér smá Regínu tíma í smá tíma. Það verður voða gott:P.

Svo eru mamma og pabbi að koma á miðvikudaginn. Ég hlakka voða mikið til að fá þau og það verður frábært að sjá þau aftur.

 

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.02.2007 14:03:09 / reginauo

Lælilæ

Jamm jamm eg er aftur komin til Svendborg og er buin ad hafa thad ljuft. I gær løbbudum vid um i bænum og forum a kaffihus. Svo tjilludum vid bara i gær og horfdum a Click med Adam Sandler. En svo er eg lika flutt yfir a Nørrebro og held ad mer eigi eftir ad lida mjøg vel thar. Eeeen eg nenni ekki ad blogga. Bloggandinn kemur kannski yfir mig bradlega aftur. Krossid fingurna ;-)

» 2 hafa sagt sína skoðun

20.01.2007 12:15:51 / reginauo

drip drop

Í gær vaknaði ég og mér fannst undarlegt að heyra ekki í regndropum og kíkti þ.a.l. út um gluggan og hvað haldiði, það var sko bara engin rigning heldur sól. Ohh mér hlýnaði nú smá í hjartanu. Það er alltaf svo miklu auðveldara að vakna þegar það er sól úti. En í dag er nýr dagur og það er að sjálfsögðu komin rigning aftur. Átti bágt með að hjóla í vinnuna í morgun vegna roks og var frekar vot eftir 5 mínútna hjólatúr. Og ekki nóg með það heldur er ég að eiga svona Regína klaufi dag. Ég hef bloggað um þá daga áður. En ég verð einstaklega pirruð á svona dögum því að ekkert virðist ganga upp og ég rek mig í allt, missi hluti og geri alls kyns vitleysur.

En nú er bara vika þar til að ég flyt af Vesterbronx til Nørrebronx. Ég er bara farin að hlakka ágætlega til. Er að fara í stærra herbergi þannig að núna verður kannski pláss fyrri allt draslið mitt. Ótrúlegt eins og mér finnst ég ekki eiga mikið dót þá einhver veginn hefur manni tekist að safna að sér alls kyns dótaríi. Kvíði mest fyrir að bera dótið niður af 6. hæð og svo upp á 5. hæð aftur. Þá er nú gott að eiga góða að sem getur hjálpað manni að flytja :D.


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.01.2007 11:23:19 / reginauo

Hóst hóst

Úff helgarferðin varð nú ekki eins og hún var plönuð vegna veðurs. Engir rómantískir göngutúrar um miðbæinn :whut:,  meira helv. rok og rigning. En við höfðum það hins vegar mjög fínt heima hjá Birni vinar Rickos að horfa á risa stóra flatskjás sjónvarpið hans:D.
Náði mér samt í einhverja drullu þannig að nú er ég búin að vera hálf lasin, hóstandi og með endalaust hor og bólgnar ennis- og nefholur. Ekki gaman. Þannig að plan vikunnar er að reyna að ná þessu ógeði úr systeminu með mikilli vatns- og tedrykkju og vítamínáti og borða hollt þegar ég hef lyst.

Hóst, hnerr og snít- kveðjur frá Köben ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.01.2007 16:16:36 / reginauo

Helgarferð

Við Ricko ætlum að skella okkur í afslöppunar og skemmtiferð til Svendborgar yfir helgina. Vinur hans Rickos sem býr þar ætlar að halda partý á laugardagskvöldið og er okkur boðið og svo ætlum við bara að fara á kaffihús og labba um litlu göngugötuna og hafa það pínu rómó:).

Annars er búið að vera ógeðslega leiðinlegt veður hérna í Köben. Rigning og rok og ég sem gleymdi  regnkápunni minni heima á Íslandi, iss piss. En sem betur fer koma Biggi, Fjóla og börnin aftur til Köben á mánudag og þá fæ ég hana aftur, fíjúff...


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.01.2007 12:13:37 / reginauo

Nýtt ár

Já það er bara komið nýtt ár. Ótrúlegt hvað tímarnir líða hratt. Árið 2006 var ekkert æðislegt ár en ég sé fram á það að 2007 verði mjög gott. Er að byrja í nýjum skóla og vona innilega að ég komist inn í annan til :S og ég hlakka mikið til þess að spreyta mig á "nýjum" hlutum og víkka sjóndeildarhringinn.

Ég ætla að reyna að vera dugleg í blogginu til að þið getið fylgst með afdrifum mínum.

KnúZ og kossar til allra...:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.12.2006 12:44:08 / reginauo

Dúdúdírú

Jamm ég er komin heim en er föst inní Kringlu að vinna í Jens þannig að allir sem vilja hitta mig fyrir jól mega koma að heimsækja mig þangað:lol:


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 10:30:36 / reginauo

Helgin...

Átti mjög fína helgi. Á föstudagskvöldið fór ég í smá gleðskap til Álfrúnar og Egils þar sem saman voru komnir nokkrir Íslendingar til að fagna fullveldisdeginum,( já já allar afsakanir notaðar til að halda partý ;)). Svo á laugardeginum þá fór ég og reif Álfrúnu, Egil og Karen framúr rúminu og við töltum uppí bæ og röltum þar um og skoðuðum fólk og jólaljós. Fengum okkur að borða á póstsafninu og ég fékk þetta líka ljúffenga salat, nammi namm. Svo gengum við meira um og borðuðum brenndar möndlur og fórum inn í Illum bolighus þar sem fólk var í óða önn að kaupa jólagjafir. Síðan ætluðum við að fara á Hvids vinsstue og fá okkur jólaglögg en þar var stappað út úr dyrum þannig að við enduðum á einhverju kaffihúsi.
En svo þurfti ég að drífa mig heim. Ég hélt smá partý fyrir stelpurnar í vinnunni og við borðuðum Thai mat sem var mjög góður og svo var bara malað fram á nótt þanngað til við drösluðumst niður á Ideal bar þar sem var funkadellic kvöld og dönsuðum við fram á rauða þar til ég gat ekki meir og fór heim. Svo vaknaði ég á sunnudaginn með þvílíkann hálsríg og hann er enn að plaga mig. Ég hlít að hafa hrist hausinn svona allsvakalega í dansmúvunum! úje 


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 10:48:51 / reginauo

Fékk þetta frá Halldóru

Muniði eftir bókunum sem maður átti, "vinir mínir", "skólafélagar mínir" o.s.frv. þar sem gullkornin fengu að streyma.
Sá svona spurningalista á einni bloggsíðu...og svariði nú svo þetta blogg poppist aðeins upp, þið hafið hvort eð er ekkert skárra að gera! :lol:
(sumar spurningarnar eru samt smá skrítnar...)

1. Miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndirðu bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndirðu þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefurðu heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefurðu talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?
22. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
23. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
24. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
25. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?


við í svaka fíling
Ég og Halldóra með úberbros í brúðkaupi Láru og Ágústar


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.11.2006 11:26:44 / reginauo

Andsk... helv...djööö....

Stór færsla horfin bara af því að tölvan var með eitthvað attitjúd og ákvað bara að loka öllum gluggunum.

Pis og lort....


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.11.2006 10:36:01 / reginauo

INSOMNIA

Ohhh, flestir sem þekkja mig vel vita að ég hef alltaf átt frekar erfitt með svefn, sef aldrei vel fyrstu næturnar í nýju rúmi eða á nýjum stöðum og þjáist af andvökunóttum alltaf svona öðru hvoru. En ég hef verið mjög heppin með þetta í marga mánuði og ekkert haft í vandæðum með þetta þangað til nú. Ég er ekki búin að sofa vel síðustu þrjár nætur og ég er orðin frekar þreytt, úff. Ég bara velti mér og get ekki fundið rétta stellingu og er með óróleika í löppunum. Það getur nú reyndar verið skýring á þessu með óróleikann í löppunum vegna þess að þegar ég ætlaði að fara að hjóla í vinnuna í gærmorgun þá var nú bara sprungið á því og mín þurfti bara að gjöra svo vel að labba lang leiðinna í vinnuna og heim úr vinnunni svo með hjólið í viðgerð og svo aftur niður í bæ og aftur heim. Ég held að ég hafi ekki gengið svona mikið í marga mánuði. En ástæðan fyrir að ég er að labba þetta allt saman í staðinn fyrir að taka strætó er að það er ekkert svo auðvelt að taka strætó heiman frá mér og niður í bæ og mér finnst það sóun að eyða pening í strætó fyrir bara nokkrar stöðvar. En ætli ég splæsi því nú ekki á mig þar sem ég fæ hjólið mitt ekki fyrr en eftir vinnu á morgun.

En að öðru þá fór ég á kóræfingu hjá Trinitatis Kantori kórnum í gærkvöldi og er að spá í að vera með í þeim kór. Þau eru að æfa MarieVesper eftir Monteverdi og ætla að flytja það eftir tæpar 2 vikur og get ég því ekki verið með í því en kannski byrja ég að syngja með þeim eftir það og tek þátt í jólaprógramminu hjá þeim. Ég söng samt með alla æfinguna í gær og ég var bara hel... góð ef ég má hrósa sjálfri mér. Hef aldrei sungið þetta áður og las þetta bara beint af blaðinu og stóð mig líka svona vel og gæti svo sum alveg sungið með á þessum tónleikum. En þetta er líka svona tónlist sem ég hef sungið frekar mikið af og maður getur mikið reiknað út hvað kemur næst. En það var mjög gaman að syngja aftur með kór. Fékk samt pínu illt í mjóbakið á að sitja og syngja frá 19-21:50, frekar löng æfing.

LaLaLaLaLa


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 11:52:30 / reginauo

dúdúdúrú

Helgin liðin og hún var ansi róleg. Fór snemma í háttinn á föstudagskvöldið og vaknaði þ.a.l. snemma á laugardagsmorgni og fór í söngtíma sem gekk alveg glimrandi vel.
Svo var deginum að mestu leiti eytt úti á Islandsbryggju þar sem Úlfhildur Birta hélt upp á 1 árs afmælið sitt. Þar var boðið upp á ýmislegt gott og girnilegt og frábært að fá flatkökur með hangikjöti og rúgbrauð með reyktum lax og svo auðvitað kökur og gúmmelaði:lol:.

Restinni af helginni var svo eytt í kósýheit og letikúr með Ricko, voða gott.


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.11.2006 11:08:38 / reginauo

úúúú

Nýtt lúkk og ný skoðanakönnun.

Hvað finnst ykkur?


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.11.2006 12:00:13 / reginauo

Voða skemmtilegt

Stal þessu frá karókídrottningunum

Hvað þýðir nafnið þitt:

R- Fuckin crazy
E- Damn good kisser
G- Never let people tell you what to do
I- Loves everyone
N- Dead sexy
A- Likes to drink


A: Likes to drink.
B: Likes people
C: Is wild and crazy.
D: Has one of the best personalities ever.
E: A damn good kisser.
F: People adore you.
G: Never let people tell you what to do.
H: Have a very good personality and looks.
I: Loves everyone.
J: Lives life for fun.
K: Really silly.
L: Loved by everyone
M: Makes dating fun
N: Dead sexy.
O: Best in bed.
P: Popular with all types of people.
Q: A hypocrite.
R: Fuckin Crazy
S: Easy to fall in love with
T: Loyal to those you love.
U: Really like to chill.
V: Not judgemental.
W: Very broad minded.
X: Never let people tell you what to do.
Y: One of the best damn bf/gf ne one could ask for.
Z: Always ready.


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Klukkan
Dagsetning
9. september 2010
Skemmtilegar síður